29. nóvember, 2011
Steini skrifar
Anna Hulda Ólafsdóttir fjallar um áhrif gæðastjórnunar á mannvirkjagerð; hún greinir stöðu gæðastjórnunar í mannvirkjagerð á Íslandi, muninn á verktökum sem starfa eftir gæðastjórnunarkerfi og hvaða þættir það eru sem hafa mest áhrif á ánægju verkkaupa.
Þetta verkefni hjá Önnu Huldu er vel unnið, stútfullt af gagnlegu efni og upplýsingum um torskilda gæðastjórnun og markað sem endalaus þörf er á að greina betur. Eftir að hafa lesið verkefnið, breyttum við hjá Naglanum fyrirkomulaginu á einkunnagjöf. Einnig höfum við bætt við flipa fyrir gæði á heimasvæði verkkaupa þökk sé innblástri frá Önnu.
Verktakar athugið greiningu á upplifun verkkaupa – sjá hvernig einfaldar breytingar í verklagi geta hjálpað þér að auka líkurnar á jákvæðri upplifun verkkaupa af viðskiptum.
Frumkvöðlar, Gæðastjórnun, Samtök iðnaðarins, Skýrslur |
3. nóvember, 2011
brynja skrifar
12% af þeim sem voru heimsóttir á vinnustaði í átakinu „Leggur þú þitt af mörkum?“ reyndust vera í svartri vinnu eða ekki á staðgreiðsluskrá. Heimsóttir voru rúmlega 2 þúsund vinnustaðir og yfir 6 þúsund starfsmenn.
Skortur er á viðeigandi eftirlitsúrræðum til að taka á og koma í veg fyrir brot á reglum um skattskil eða skil á öðrum gjöldum. Rannsóknarúrræði eru til staðar en henta illa í einföldum eftirlitsstörfum eins og þeim sem átakið beindist að – þetta voru meðal helstu niðurstaðna átaksins.
lesa meira »
Lagaumhverfi, Ríkissjóður, Samtök Atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Skýrslur |
11. október, 2011
brynja skrifar
Átakið Inspired by Iceland hefur heldur betur slegið í gegn. Nú mun veislan halda áfram því markaðsátakinu Íslendingar! Bjóðum heim hefur verið hrundið af stað.
Íslendingar! Bjóðum heim er fyrsti liður af 3ja ára markaðsverkefni í að efla vetrarferðaþjónustu á Íslandi. Allir Íslendingar eru hvattir til þess að fara á heimasíðu verkefnisins og bjóða einstaklingum heim! Viðburði þarf að skrá og getur það verið allt frá því að fara ísrúnt með einhverjum gesti, taka einhvern með á gæsaskytterí eða skoða norðurljósin. The sky is the limit. Hafir þú tök á og löngun til að taka þátt, þá ættirðu endilega að skrá viðburð þinn og athuga hvort erlendir gestir kíki ekki við. Hægt er að skrá viðburði hér. Viljir þú skoða hvað aðrir bjóða upp á, þá er það hægt hér. Vonast er til með þessu verkefni að hægt verði að jafna árstíðasveiflu í ferðaþjónustu og gera iðngreinina stöðugri.
Netnotkun, Upplýsingatækni |
8. september, 2011
brynja skrifar
Enn á ný er komin upp umræða um smákökulögin (e. “Cookie Law”) en að þessu sinni mun hún fara fram á ensku og á morgunverðarfundi þann 13.sept. nk. hjá Ský.
Þessi Evróputilskipun hefur haft mismikil áhrif á aðildarríkin og ekki eru öll þeirra búin að setja löggjöf út frá tilskipuninni. Spurningin er víst hvernig útfærslan sé innan ríkjanna, en ekki hvort.
Tilskipunin er umdeild og ekki eru á allir eitt sáttir með hana. Sumir segja að hún gæti unnið gegn internetinu þar sem það er í eðli sínu þannig að það byggist upp á “cookies” og að fylgjast með hegðun netnotendans. Að ekki sé hægt að uppfylla skilyrði tilskipunarinnar svo vel sé, nema að nýr hugbúnaður komi sem geri það kleift. lesa meira »
Netnotkun, Persónuvernd, Skýrslur, Upplýsingatækni |